24apríl

jájá

Jæja kannski komin tími á nýja færslu....

Voða lítið að frétta síðan seinast en.... Vitiði um íbúð til leigu á EGS sem kostar ekki milljón á mánuði? Allar ábendingar vel þegnar.... já en það stefnir semsagt allt í að ég verði á Akureyri í sumar vegna húsnæðisskorts á Egilsstöðum, ég er ekki beint tilbúin að fara að leigja á 100 þúsund á mánuði á meðan ég er í skólanum og það ekkert annað í boði á þessum æðisgengna stað.... en já.. Hvað er með þetta húsnæðisverð ananars? Lítil íbúð á 100.000 á mánuði... og ef maður er með e-ð meira en sem samsvarar ellilífeyrisgreiðslum í laun á mánuði þá á maður ekki rétt á húsaleigubótum, sem hefur svosem ekki mikið að segja þar sem að bæturnar eru skítur á priki.... En svona er þetta, það eru alltaf til nægir peningar þegar að einhverjum alþingismönnum dettur í hug að byggja menningarhús, "æj við minnkum bara fjárveitingarnar til heilbrigðismála og frestum byggingu sjúkrahúsa í staðinn, það er svo gaman í óperu"

ég blogga aftur þegar ég er komin í betra skap....

-Bríet ekki sátta
24. apríl 2008 klukkan 18:57
Bríet Magnúsdóttir
3 athugasemdir
04desember

Auglýsing

Hver vill vera svo vænn að kenna mér stærðfræði?
Vill sá hinn sami hafa samband við mig núna eða strax.
Takk.

En vá stærðfræðiprófið var erfitt, það leið yfir strák í prófinu og stelpa fór að gráta og e-ð, þetta eru ekki beint aðstæðurnar sem maður kýs þegar maður þarf að einbeita sér en þetta reddast en  ég var sú eina sem féll (allavega er það kraftaverk ef  ég hef giskað á rétt svör í prófinu), dramatískur dagur. Ég er búin að fá panikkattakk í dag, fékk óstjórnlega þörf til að ákveða hvað ég ætla að verða í framtíðinni en virtist ekki geta með nokkru móti komist að niðurstöðu, ég veit ekki einu sinni hvað ég á að gera eftir áramót hvað þá lengra fram í tímann.

Ég hef fundið minn eigin hjartslátt núna í 3-4 vikur er það eðlilegt? Stress og háþrýstingur?

Nee... jú kannski stress en vona ekki háþrýstingur... þá er ég í djúpum...

en allavega...

Hvar eru allir? Þá meina ég allir sem hafa verið með manni í bekk í gegnum tíðina? Hvar er Baldvina? Hvar er Kristín kennari sem að átti ofurstóru spilin? Skrítið að pæla í þessu... líka bara hvar allir eru sem voru með manni bara í 10. bekk, eiga hús og börn og hund og bíl og skuldir og fleira adult stöff.

Endilega commentið ef þið hafið verið með mér í bekk og segið mér hvað þið eruð að bralla.

Fínt bæjó

04. desember 2007 klukkan 19:14
Bríet Magnúsdóttir
9 athugasemdir
29nóvember

Jafnréttisfélag allra

Er ekki brot á jafnrétti kynjanna að feminista félag skuli vera til? Hvar er kallafélagið? Ég skil alveg þetta með mannsal og launamisrétti og þar fram eftir götunum en kallar eru nú bara líka oft útundan á ýmsum sviðum í þessu þjóðfélagi eins og konurnar. Mjög margir gapa ef að faðir fær fullt forræði yfir börnunum sínum ef að móðirin er ekki forfallinn dópisti eða e-ð þaðan af verra, og afhverju"pabbahelgar"? Aldrei er mömmuhelgi.. HVAÐ er málið með þessa femínista sem eru núna að neita að koma í Silfur Egils? Það eru einfaldlega fleiri karlmenn í pólitík en konur, og heldur þú öfgafemínisti góður að einhver nenni að horfa á sömu kellingarnar trekk í trekk í sjónvarpinu, kvenkyns  RÁÐHERRARNIR tel ég bara vera hlutfallslega meira áberandi en karlarnir í fjölmiðlum eða allavega ekki minna áberandi. Og kona getur verið ráðherra sættið ykkur við það svoleiðis hefur það alltaf verið.
Og það er ekki brot á kynjamisrétti, það er öllum sama. Reyniði frekar að berjast fyrir einhverju þarfara en breytingum á íslenskri tungu takk fyrir. En ég vil sjá stofnað Jafnréttisfélag allra ekki bara fyrir konur. Þá er hægt að eyða tíma og kröftum og peningum og öllu slíku í að gera okkur öll að jafningjum, hvort sem við erum fátæk, fötluð, rík, falleg, öryrkjar, verkamenn, forstjórar, alþingismenn, ljóshærð eða hvað sem er þá er enginn betri en einhver annar á öllum sviðum, það væri jú fullkomnun ef svo væri, og hún er ekki til svo ég best veit.
Takk pent.

Bríet jafnréttissinni


29. nóvember 2007 klukkan 23:22
Bríet Magnúsdóttir
5 athugasemdir
21nóvember

Fleiri myndir af músum

Bætti við örfáum (frekar mikið)  gömlum myndum sem minna á fína daga.....

svo set ég inn nýjar  myndir í jólafríinu, ætla að vera með vélina á lofti allt fríið...

kvepsó
21. nóvember 2007 klukkan 13:02
Bríet Magnúsdóttir
Engin athugasemd
18nóvember

Luuufsu próf....

Já það er lítið að frétta af þessum bæ svosem, Skóli og skóli og heim og horfa á TV hefur einkennt þessa önn í meira lagi... en næsta önn verður vonandi ekki jafn sorgleg.... ég verð Þá í aðeins fleiri fögum og kannski flykkist maður með landsmönnum í líkamsrækt... aldrei að vita... en já... ég fór að sofa uppí kröflu um daginn af því bjarni var þar, það var spes... Við keyptum ofurkagga þannig að núna get ég stundum fengið að keyra bíl....

Hey gaur ég fer austur um jólin, ætli ég lendi ekki á egilsstöðum City 15. des, seinasta prófið mitt er víst 14. des, eða kannski maður leggi bara í hann strax eftir próf... hver veit... og vá hvað það verður indælt að fá frí frá námi í 3 vikur eða svo sem jólafríið mitt spannar...

allt mitt sumar fór í að vinna á lágmarkslaunum, lágmarks vinnutíma og læra íslensku og fara í ræktina þar sem uppskeran var engin nema ein skitin íþróttaeining... en það er svosem ágætt að klára þessa helltis íslensku, ég gat bara ekki með nokkru móti hugsað mér að þurfa að sitja þessa tíma í skólanum... íslenska er leiðinlegasta fag sem ég hef farið í í framhaldsskóla... og ég hef prófað mörg!

loksins  er ég búin með silfurhringinn minn sem ég var að smíða, nú tekur hálsmen og annar hringur (svona sett)  við sem ég þarf að klára á 4 tímum... að takast? NEI... allavega ég luma mér bara inn í hinn hópinn og næli mér í 4 aukatíma... fun fun fun það er gaman í þessu...

en þetta er ofur leiðinlegt blogg þar sem að ekkert hefur gerst hér að undanförnu...

en é blogga um jólin þegar partýið hefst... ÍHAAA! búin að lofa nokkrum djammi og piparkökukirkjubakstri :) og svo gerist óneitanlega fátt skemmtilegt í shell um jólin, þar sem ég mun BTW eyða jólunum.....

en ég er farin að læra undir tvö SEINUSTU annar prófin mín :) og svo tekur bara við stærðfræði, og stærðfræði og stærðfræði og já  stærðfræði þangað til 3. des en þá er lokaprófið einmitt...

svo fæ ég einn dag frí, læri svo undir efnafræðiprófið svo fæ ég 4 daga frí og þarf þá að læra undir eðlisfræði (OJ) og líeðlisfræðiprófin mín....

bæj
18. nóvember 2007 klukkan 11:22
Bríet Magnúsdóttir
7 athugasemdir
10október

Kisukrísa

Ég fór í þriðju af fjórum frægu útivistarferðum mínum í gær... Búin að fara Þingmannaleið og fálkafell. Í gær Áttum við að labba eina 15 km eða að Vín (frá VMA) við röltum gömlu brýrnar og kennararnir féllust á það að við myndum labba hálfa leið og svo til baka í staðinn fyrir alla leið og verða sótt, allt í lagi með það... ég labbaði framhjá Þórustöðum 1, allt í fína næsti bær hét Þórustaðir 2-4, og næsti getiði þrisvar hvað hann hét! Þórustaðir 7!! Það er hugmyndaríkt fólk sem kann að telja hér í Eyjafirðinum það verður sko ekki frá því tekið en svo eftir þessa mögnuðu lífsreynslu og halda átti heim fórum við yfir götuna til að labba á móti umferðinni, haldiði að það hafi ekki legið lík í vegkanntinum, já væntanlega búin að vera þar stutt, (það vantaði ekki í það augun) semsagt hann Brandur frá Þórustöðum 7 sem kemur á eftir Þórustöðum 2-4 er dáinn. Hann var krúttlegur með eindæmum og liggur þarna sjálfsagt enn, en hann verður ekki lengi þarna, hann verður borðaður af krumma og krummu....

en já, ákvað að deila með ykkur sögu sem ég virðist deila að hluta til með Björgu þessa stundina...

það er ALLTAF köttur á svölunum hjá mér sem að kennarinn á í næstu íbúð sem heldur við nemendur, hún er ýkt sæt og þá meina ég kötturinn...

bæjó...

10. október 2007 klukkan 15:45
Bríet Magnúsdóttir
3 athugasemdir
06október

Smitningur?

Ákvað að henda inn nokkrum línum þar sem að klukkan er alveg ýkt lítið á laugardagsmorgni og ég nenni ekki að gera eðlisfræðiverkefni strax. Afhverju þarf RÚV að vera jafn skemmtilegt áhorfs og rotnandi lík? Er eitthvað svona náttúrulögmál sem að segir að dagskráin þurfi að vera það leiðinleg að sjónvarpið er alltaf stillt á MUTE? eða svona bróðurpart úr degi þar sem að ég hef ekki um ýkja margar stöðvar að velja úr..  Ég er að kvefast hér á ljóshraða sem er ekki alveg nógu sniðugt því þá þjáist maður af kúrfílingi og kemur engu í verk... Litningur smitningur... hvað er hægt að gera við heimatilbúinn litning? spyr sú sem ekki veit, mér finnst hæpið að það sé hægt að troða honum inní kjarna fósturs með litningagalla... geðveikur bömmer ef að það vantar svo eitt basapar í viðbót við þessi 580 þúsund basapör sem hann inniheldur víst, 30 ára eða meiri vinna ónýt...

hné hné... en gott að einhver nenni þessu...

það eru alltaf próf í þessum ágæta skóla, í líffræði eru tvö 7.5% próf og tvö 35% próf, rólegur á því herra kennari....reyndar eru 35% prófin lokaprófið sem skipt er í tvennt, svo eru þrjú próf í efnafræði sem gilda 15% hvort plús lokapróf og þar frmmeftir götunum...

Sneddí með eindæmum...

en ég hef ekkert að segja og það hrjáir mig pappírsleysi....  Æ nýt tú *snýt*...ég er ýkt að vona að ég smitist ekki af E-coli bakteríunni... hún er ekki vinur minn...

bleeeeeeeðelll........
06. október 2007 klukkan 11:26
Bríet Magnúsdóttir
2 athugasemdir
28september

nei

Fley...
Ákvað að skella inn nokkrum línum í tilefni dagsins, ég er komin í helgarfrí sem ég er búin að þrá síðan ég mætti í stærðfræði klukkan 9:55 seinasta Mánudag...

Bíddu ætla að setja á lag...

Þegar ég var yngri (er ennþá lítil að mér finnst að minnsta kosti, kannski er ég hrædd við ábyrgð og skuldbindingar, hver veit? Hringjum í Dr. Phil vin minn, hann veit sko svarið!) en þá er ég að tala um sirka þegar ég var í 10. bekk semsagt sirka 4 ár síðan þá var ég að biðja mömmu um að fara til útlanda, bara e-ð (hef bara komið til DK í 5 daga eða e-ð) en mamma sagði alltaf "en ef það verða hryðjuverk og jaríjari jah..." ég náttúrulega bara var heima, ekki srík ég til útlanda af því að mamma bannar mér það eins og virðist vera algengt hjá krökkum í dag að hverfa af yfirborði jarðar í svona 5 - 7 daga án þess að láta kóng né prest vita... svo fara þau nú að hugsa  þegar löggan lýsir eftir þeim, "æj kannski var þetta kjánalegt af mér að strjúka að heiman, mamma bannaði mér nú bara að fá bland í poka"... og þau skunda heim litlu börnin... En samt alltaf þegar er auglýst eftir fólki sem er týnt, afhverju eru alltaf svona 3 eða 4 dagar síðan barnið týndist áður en það er byrjað að auglýsa eftir því? ok allt í lagi að það líði sólahringur þangað til að farið er með það í fjölmiðla en  kommon á barnið svona marga vini að það tekur að meðaltali 3 daga að hringja í þá alla og athuga hvort að það sé nokkuð niðurkomið inni í herbergi hjá þeim og vinkonan er alltí einu farin að fá sér geðveikt mikið á diskinn í kvöldmatnum og segist vera að læra svo mikið það þurfi að læra inni í herbergi... eða er foreldrum það mikið sama um þau að þau fatta ekki að það vantar eitt barnið fyrr en á miðvikudaginn af því að þá er vika síðan hún hitti barnið seinast, alltaf á miðvikudögum klukkan 12:15 eru allir heima... en bara á miðvikudögum...

en já semsagt þegar ég var að biðja um að fá að fara til útlanda þá voru engin hryðjuverk nema í bandlabar löndunum en núna þegar ég ræð mér sjálf  er alltaf verið að koma fyrir sprengju í öllum löndum nema íslandi og þá langar mig ekki út...

töff líf..

allavega..



ég er ekki að skilja, en annars hafa þessi börn yfirleitt meira en bland í poka til að strjúka frá...

28. september 2007 klukkan 10:38
Bríet Magnúsdóttir
2 athugasemdir
22september

In my secret life..

Já þar gerist sko margt skal ég segja ykkur. En það er svosem ekki mikið að frétta, ég labbaði þingmannaleið á miðvikudaginn ásamt rúmlega 50 manns og ég var ekki seinust! Hlæjandi Hópnum var skipt í tvennt á ca miðri leið í hraðferð og hægferð og auðvitað var mín á hraðferð! Glottandi En SJITT hvað það var erfitt að fara niður! Maður var farinn að titra í hnjánum þetta reyndi svo á þau og maður missteig sig í hverju skrefi af því að þetta voru ekkert nema þúfur og svo skautaði maður niður moldarfllag þess á milli en þetta var BARA gaman. Fékk reyndar 4 nýjar blöðrur á lappirnar og var með 3 fyrir þannig að þetta var frekar sársaukafull ferð.

Ég þarf að æla, BRB....

Oj... gat ekki ælt en allavega shit hvað mér er óglatt, get ekki einu sinni klárað hafragrautinn minn Fýldur

Hey smá svona þenkíng... Afhverju gera læknar sem ég fer til aldrei neitt? Ok ég er búin að fara með ógleðina mína 3 til læknis einn byrjaði á að segja (eftir að hafa horft á mig) að þetta væri ekki til semsagt að mér væri bara ekkert óglatt eins og hann viti hvernig mér líður, svo sagði annar að ég væri örugglega með magabólgur ( með því að horfa á mig) lét mig fá töflur og vitiði hvað? þær virkuðu ekki! í alvöru? og sá þriðji fór útí að spyrja mig hvernig mér liði þegar mér yrði svoa óglatt.. hummm illa? hann semsagt sagði mér að fara heim og skrifa dagbók um hvenær mér yrði óglatt og afhverju og hvernig mér leið andlega rétt áður, hann reyndar spurði hvort ég stundaði kynlíf og þess háttar og lét mig taka þungunarpróf þó að ég væri búin að segja honum að það væri ekki möguleiki að ég væri ólétt nema pillan myndi barna mig ... semsagt crap, þetta kemur allt í einu, eins og núna áðan var ég bara að borða og í geðveikt góðu skapi og allt í einu snýr hafragrauturinn við á leiðinni og ætlar sér að koma út um vitlausan enda, ég hélt nú ekki... HVAÐ ER AÐ MÉR?? Mér var óglatt á hverjum degi í svona 2 - 3 ár með svona velgju og skemmtileg heit, núna fæ ég þetta sjaldnar og kúgast þá og þarf að eyða bróðurparti af morgnum yfir klósettskálinni... Fönn fönn..

allavega ákvað að létta á mér svona rétt fyrir kostningar...

en hvað segiði annars?

það eru tveir guarar með mér í tímum sem líta út eins og alex band... gaman af því.. mér finnst þeir vera töff...

HAHA Hlæjandi eruð þið búin að sjá auglýsinguna þarna Americas next top model þar sem að tyra banks kemur í endann og segir eitthvað með hvísl hreim sem er eitthvað í áttina "fashion fashion", geðveikt ýkt og alvarleg á svip, já Tyra þetta er fashion ekki eitthvað merkilegt... hef ekkert á móti þáttunum sem slíkum en Tyra ef þú ert að lesa þetta, hættu nú alveg þetta er meira fyndið en alvarlegt...



22. september 2007 klukkan 10:50
Bríet Magnúsdóttir
2 athugasemdir
06september

Víj

Jahá...

Var í skartgripagerð í dag, geðveikt gaman, var að reyna að meðtaka hvernig á að kveikja saman silfur, man ekki alveg, lóðvatn, hitinn þarna, þarna er litli gasloginn og þarna stóri og fleira stuð Glottandi kennarinn minn hrósaði rúninni minni sem ég var búin að pússa til bana í hástert, sem var ánægjulegt, ég var búin að hafa hnút í maganum í viku afþví ég hélt að ég væri með ljótustu rúnina... var nú að reyna að gúúgla rún eins og ég var að gera en hún er apperentlí ekki til...

Efnafræði er best...

er að passa páfagauk sem heiti Ninni, ég kallaði hann Nenna í rúma viku og hann svaraði aldrei svo leiðrétti faðir minn mig og við erum best buddís.. hann er svo frekur að maður má ekki flauta þá snappar hann...

hann er blár... eins og gaukurinn sem ég átti...

ég er víst nýnemi, en ég fékk ekki að vita af neinni helv. nýnema ferð sem var farin í fyrradag...

Bjarni er útá sjó, Fýldur hann hringdi áðan en svo slitnaði í miðju samtali... ekki sniðugt þar sem hann er að veiða á einhverjum "brjálaðahrygg" ekki töff...

ég heyri í honum næst á sunnudaginn sem er takmarkað töff...

ég er búin í skólanum klukkan 9:40 á föstudögum sem er best í heimi...

sund er fínt, ég hef ekki farið í sund fyrr en núna síðan í grunnskóla...
06. september 2007 klukkan 22:32
Bríet Magnúsdóttir
1 athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Bríet Magnúsdóttir
  • Staður: Akureyri
  • Atvinna: Nemandi
  • Hjúskaparstaða: Trúlofuð Bjarna mínum...
  • Um mig: Ég er 19 ára stelpa í VMA, á náttúrufræðibraut. Ég á Pabba og Mömmu, ég á 2 bræður og kött og unnusta.. allt sem segja þarf..

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur